Ísland á verðlaunapall á EuroSkills
Gunnar Guðmundsson, keppandi í iðnaðarrafmagni, vann til bronsverðlauna í sinni keppnisgrein á EuroSkills 2025 sem fram fór í Herning í Danmörku í vikunni. Verðlaunaafhending og lokahátíð keppninnar fór fram í gærkvöldi. Gunnar hlaut 719 stig í keppninni. Annar varð Martin Riegler frá Austurríki með 721 stig en Philip Svensson frá Svíþjóð hlaut gullverðlaun með 737 stig.
Tvær viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur
Tveir íslenskir keppendur hlutu auk þess „medal of excellence“ fyrir framúrskarandi árangur. Það voru Andrés Björgvinsson fyrir matreiðslu og Daniel Francisco Ferreira, sem keppti í húsarafmagni. Andrés varð níundi í matreiðslu en Daniel fimmti.
Þúsundir aðstandenda og annarra áhorfenda hylltu verðlaunahafa í keppnishöllinni Boxen í Herning í gærkvöldi en til gamans má geta að þar leikur danska landsliðið í handknattleik heimaleiki sína. Gríðarleg stemmning var í höllinni enda vel staðið að allri skipulagningu mótsins.
Rúmlega 100 þúsund gestir á EuroSkills
Keppt var í 38 iðn- og verkgreinum á EuroSkills að þessu sinni en Íslendingar áttu fulltrúa í þrettán greinum. Að auki tóku fjórtán expertar þátt fyrir hönd Íslands en það eru þjálfarar keppenda sem jafnframt gegna hlutverki dómara í keppninni. Alls taldi hópurinn 41 einstakling.
Keppnisdagarnir voru þrír, miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur, en keppendur höfðu undirbúið sig vikum og mánuðum saman í aðdraganda mótsins. Alls lögðu 103 þúsund gestir leið sína á EuroSkills.
Sigur í sjálfu sér að komast á EuroSkills
Poul Nyrup Rasmussen, formaður stjórnar keppninnar og fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, sagði í ávarpi sínu við upphaf verðlaunaafhendingarinnar að allir keppendur væru sigurvegarar. Það væri sigur í sjálfu sér að ná þeim árangri að komast á EuroSkills og taka þátt í keppninni.
Haldið heim á leið frá Herning
Í dag heldur íslenski hópurinn heim á leið en óhætt er að segja að íslenskir keppendur hafi verið landi og þjóð til sóma sem fánaberar sinna iðn- og verkgreina. Keppendur og expertar halda nú reynslunni ríkari til síns heima. Eftir situr ekki aðeins reynsla og þekking, heldur minningar sem endast ævilangt
Verkiðn / Skills Iceland færir Gunnari, Andrési, Daniel og öðrum keppendum Íslands á EuroSkills innilegar hamingjuóskir með árangurinn.
Á morgun, mánudaginn 15. september, tekur Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, á móti hópnum á Bessastöðum.