Mín framtíð 2027
Dagana 10.–13. mars 2027 fer fram framhaldsskólakynning og Íslandsmót iðn- og verkgreina
Kynntu þér nám í framhaldsskóla á „Minni framtíð“.
Hefur þú áhuga á stærðfræði? Undrum geimsins? Fjármálum? Kvikmyndatækni, listum, bílum eða matreiðslu? Öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á því yfir þrjátíu ólíkir skólar kynna námsframboð sitt.
Gert er ráð fyrir að á bilinu 9.000 til 10.000 grunnskólanemendur mæti á viðburðinn en öllum nemendum 9. og 10. bekkjar er boðið.
Á sama tíma heldur Verkiðn Íslandsmót iðn- og verkgreina, þar sem keppendur reyna á hæfni sína í krefjandi verkefnum. Keppt hefur verið í 20 – 27 greinum hverju sinni og takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.